Heildræn nálgun að framúrskarandi vinnustað þar sem styrkleikar, helgun og þróun skapa árangur!
Að ná varanlegum árangri snýst ekki eingöngu um stefnu og markmið. Árangur ræðst einnig af því hversu vel vinnustaðurinn nær að virkja mannauðinn til að vinna saman að sameiginlegum markmiðum.
Í Stjórnendaráðgjöf Gallup styðjum við fyrirtæki og stofnanir við að skapa heilbrigt starfsumhverfi og framúrskarandi vinnustað. Lausnir okkar byggja á áratuga rannsóknum Gallup á stjórnun, starfsumhverfi og árangri vinnustaða.
Hafðu samband við ráðgjafa okkar og byrjaðu að móta vinnustað þar sem starfsfólk og stjórnendur ná árangri saman: stjornendaradgjof@gallup.is
Skýr verðlagning
Við vinnum með viðskiptavinum að því að ná árangri – ekki að telja tíma. Þess vegna leggjum við megináherslu á heildarlausnir þar sem ráðgjöf, þjálfun, eftirfylgni og stuðningur eru hluti af verkefninu. Markmiðið er að verkefnið skili árangri.
Heildræn nálgun að árangursríkari vinnustað
Við trúum því að varanlegur árangur verði til þegar þrír lykilþættir vinna saman:
Helgun - Gallup Access & Q12®
Styrkleikar - CliftonStrengths®
Frammistaða og þróun - Starfsþróunarsamtöl
Saman mynda þessar lausnir heildstæða nálgun sem eflir styrkleika og helgun, stuðlar að þróun og skapar grunn að árangri til lengri tíma.
Af hverju þessi nálgun?
- Styrkleikar hjálpa fólki að nýta það sem það gerir best.
- Helgun veitir innsýn í þarfir starfsfólks og starfsumhverfi.
- Starfsþróunarsamtöl breyta innsýn í þróun og árangur.
Gallup Access & Q12®
Gefðu stjórnendum öflugt verkfæri til að leiða með árangri
Gallup Access er kannana- og fræðslulausn (platform) sem hjálpar vinnustöðum að greina styrkleika og áskoranir í stjórnun og starfsumhverfi. Um leið veitir lausnin stjórnendum aðgang að öflugri fræðslu, rannsóknum, ráðgjöf og verkfærum sem styðja við markvissar umbætur.
CliftonStrengths®
Virkjaðu það besta í fólkinu þínu
CliftonStrengths hjálpar einstaklingum, stjórnendum og teymum að uppgötva og virkja sína náttúrulegu hæfileika.
Styrkleikamiðuð nálgun byggir á þeirri hugmynd að mestur árangur náist þegar fólk fær tækifæri til að nýta það sem það gerir best í stað þess að einblína fyrst og fremst á veikleika sína.
Starfsþróunarsamtöl
Samtöl sem efla árangur, þróun og helgun
Starfsþróunarsamtöl Gallup eru styrkleika- og þarfamiðuð samtöl sem tengja saman markmið vinnustaðarins, þarfir starfsfólks og dagleg verkefni.
Markmiðið er að færa fókusinn frá hefðbundnum árlegum starfsmannasamtölum yfir í markviss samtöl sem styðja við vöxt, framfarir og árangur.
Fræðsla og vinnustofur
Til viðbótar við kjarnalausnirnar okkar bjóðum við upp á fjölbreytta fræðslu og vinnustofur sem hægt er að fá sem sjálfstæð verkefni eða sem hluta af stærri verkefnum.





